![]() | |||||||
![]()
|
Verið
velkomin á heimsíðu Ungmennafélagið Dagrenning var stofnað árið 1911. Félagar eru
tæplega eitthundrað.
Þrátt fyrir smæð sína rekur Ungmennafélagið stórt
félagsheimili sem getur rúmað um 250 manns í sæti, svefnpokapláss
er fyrir hendi og hefur félagið lengi
leigt félagsheimili út til ýmis
konar hópa eins og ættarmóta, hestaferða og hvaðeina.
Árlega eru haldin Þorrablót, hagyrðingakvöld og hverkonar uppákomur, þessir atburðir eru að jafnan mjög vel sóttir og alltaf er gaman að kíkja í Brautartungu kvöldstund. Barnastarf er mjög virkt og er sérstökdeild innan UMFD, Orkan sem heldur utan um þá starfsemi. Orkan stendur fyrir árlegri þrettánda brennu þar sem krakkarnir safna í brennu, sjá um veitingar og skemmtiatriði. Leikdeild Ungmennafélagsins er einnig mjög virk og síðast var sett upp leikritið Íslandsklukkan sem var í alla staði frábær uppfærsla sem 1300 manns sáu á 20 sýningum. Var með þessu verki sett met bæði í aðsókn og sýningarfjölda leikdeildarinnar sem þó var ekki nema 5 ára þegar verkið var frumsýnt. Formaður Ungmennafélagsins Dagrenningar er Þór Þorsteinsson, ritari þess Guðrún Hulda Pálmadóttir og gjaldkeri Kari Berg.
|
![]() |